OJJJJ

Bíðið við!!!!!   Maðurinn var með kynferðislegt áreiti gagnvart ungum stúlkum, strjúkandi þeim, kyssandi og vildi "huggun" ..... HALLÓ, er ekki allt í lagi með ykkur, þið sem viljið hafa manninn áfram sem sóknarprest?  Eigið þið ekki börn, barnabörn?????
mbl.is Viljum fá prestinn okkar aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahérna bara

Hæstarétti þótti ástæða til þess að milda dóminn ...... alveg hreint ótrúlegt hvernig dómarar hugsa!!!
mbl.is Dómur mildaður yfir ökukennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GUNGUR !!!!!!!!!!!!!!!!!

Að þingmenn sitji hjá í atkvæðagreiðslu um Icesave samninginn kalla ég GUNGUSKAP.  Annað hvort eru þingmenn með eða á móti þessum samningi.  Þeir voru ekki kosnir á þing til þess að sitja hjá í þýðingarmestu atkvæðagreiðslu sem farið hefur fram á Alþingi.  Mest kom mér á óvart að sjá Þór Saari í þessum hópi. Til háborinnar skammar.  Sjálfstæðismenn hljóta líka að vera í sjokki útaf sínu fólki !!!!

Oft erum við fljót að gleyma hvað á hefur gengið þegar kemur að kosningum. En þessi atkvæðagreiðsla gleymist ekki, það er ég viss um.   Það er hræðilegt að þessi samningur hafi verið samþykktur og ekki síður hræðilegra að "sumir" kusu að sýna heigulshátt í verki og sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. GUNGUR!


Steypustjórinn

Ég er alveg bit eftir að hafa lesið að forstjóri Steypustöðvarinnar keypti sér á kostnað fyrirtækisins, 5 millj kr. jeppa undir rassinn á sér!!!  Steypustöðin er rekin af Íslandsbanka og þar er skilanefnd að störfum, ef ég man rétt. Leyfði skilanefndin þessi kaup? ....  Forstjóri bankans? ..... Hvað er þessi Hannes forstóri Steypustöðvarinnar með á mánuði í laun?.  Samkvæmt fréttinni keypti hann bílinn núna í febrúar s.l.  Og ef fyrirtækið Steypustöðin er rekin af bankanum þá er fyrirtækið líkast til í einhverjum vandræðum og reyndar ekki langt síðan að fjölda starfsfólks var sagt upp þar.

Siðblindan og spillingin er greinilega ennþá í fullum gangi hér!!!!!!!


Peningarnir????

Jón Ásgeir selur þotu og snekkju ... ok, EN hvert fara peningarnir?????  Í hans vasa eða til að greiða skuldir hans við þjóðfélagið? !!!
mbl.is Jón Ásgeir selur snekkju og flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG eða XD

Ég er í alvarlegri klípu!!!!!

 

Hef aldrei kosið VG en er alvarlega farin að hugsa um gera svo í næstu kosningum!  Mér líst vel á margt fólk sem bíður sig fram þar og það sem það hefur fram að færa sbr. Steingrím, Katrínu og Svandísi. Þoli reyndar ekki Kolbrúnu, Álfheiði og Árna Þór en það er nú bara þannig. Ég þoli heldur ekki alla sem bjóða sig fram fyrir XD eða aðra flokka. 

Ég hef alltaf verið sammála stefnunni hjá Sjálfstæðisflokknum og alltaf hræðst vinstri stjórn. En svo lærir sem lifir, eða hvað?


Flott?

Fer í taugarnar á mér þessi myndbirting af heimili Sigurðar Kára í Hús og hýbýli nýlega. Ég samgleðst honum samt að eiga fallegt heimili og fallega konu sem situr þarna á eldhúsborðinu. Ég öfunda hann reyndar ekkert af myndinni eftir Loga, en heimili hans virðist annars fallegt og ríkmannlegt.

Það sem pirrar mig er, að á meðan fjölmargar íslenskar fjölskyldur berjast í bökkum við að halda sínum heimilum, skuli hann sem þingmaður (á launum hjá þjóðinni) sjá ástæðu til þess að sýna sitt heimili í þessu blaði. Hann er líkast til ekki og vonandi ekki að missa það vegna skulda.

Auðvitað eiga fjölmargir falleg heimili og það er hið besta mál. En að vera að státa sig af því ákkúrat núna, æ mér finnst það bara ekki rétt.


Furstinn frá Katar

DJESUSSSSSSS hvað ég vorkenni honum!

Hugsið ykkur bara, Ólafur í Samskipum segist reyndar ekki hafa tapað einni krónu á furstaláninu en ÆRA hans sé í molum og að honum vegið persónulega. Aumingjans maðurinn, að það skuli farið svona með hann!!!!  Nær auðvitað ekki nokkurri átt þó svo hann hafi lánað nafn hlutafélags síns sem fyrir tilviljun er vistað á Jómfrúreyjum. Æ Æ Æ, ég vorkenni honum SVOOooooooooooooooooo

Ég ráðlegg honum bara að flytja héðan, forðast svona ofsóknir. Gæti flogið þyrlunni sinni á þessar eyjar og notið milljarðanna sem hann kannski óvart geymir þar. Koma bara aldrei til baka nema auðvitað ef hann kýs að svara fyrir sig fyrir rétti þ.e. ef við verðum svo VOND að ákæra hann fyrir "lánið"!



ERU þeir svona mikilvægari en þú?????

Finnst þér rétt og sanngjarnt að forystumenn verkalýðsins hafi ja ..... a.m.k. 3 föld ef ekki sumir 5 föld mánaðarlaun þeirra sem þeir eru í forsvari fyrir?????  EF þeir hafa svona há laun, berjast þeir þá eins fyrir kjörum félagsmanna sinna eins og ef þeir væru á sömu launum og þeir sem þeir eru í forsvari fyrir?????  Við erum að fara fram á að ráðherrar og þingmenn lækki launin sín og okkur finnst það sanngjarnt m.v. aðstæður í dag, EN EN .... hvað hefur t.d. formaður ASÍ í laun? .... yfirmenn lífeyrissjóðanna sem höndla með OKKAR peninga alla daga??? .. Eru þeir verr launaðir en þingmennirnir ......


SEGÐU MÉR ... .finnst þér????

 

 

 

 

Finnst þér rétt og sanngjarnt að forystumenn verkalýðsins hafi ja ..... a.m.k. 3 föld ef ekki sumir 5 föld mánaðarlaun þeirra sem þeir eru í forsvari fyrir?????  EF þeir hafa svona há laun, berjast þeir þá eins fyrir kjörum félagsmanna sinna eins og ef þeir væru á sömu launum og þeir sem þeir eru í forsvari fyrir?????  Við erum að fara fram á að ráðherrar og þingmenn lækki launin sín og okkur finnst það sanngjarnt m.v. aðstæður í dag, EN EN .... hvað hefur t.d. formaður ASÍ í laun? .... yfirmenn lífeyrissjóðanna sem höndla með OKKAR peninga alla daga??? .. Eru þeir verr launaðir en þingmennirnir ......

Hvernig væri að hluti af mótmælunum í dag væru þau að krefjast þess að svokallaðir forystumenn verkalýðsins lækkuðu launin sín til jafns við það sem almennt launafólk í þeirra félagi hefur. Er það ekki sanngjörn krafa???  Svo vona ég heilshugar að mótmælin í dag fari friðsamlega fram og engin skrílslæti verði.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband